|
|
|
miðvikudagur, nóvember 12, 2003
Hálfnað verk þá hafið er
Samkvæmt þessu er ég hálfnuð með að standsetja Grettisgötuna. Vúhú, já er núna byrjuð á að mála herbergið mitt og þarf ekki að spyrja kóng né prest að því ;) Er einnig að taka hurðina sem er milli litla gangsins og litlu "stofunnar" minnar í burtu. Hugsa mér að hafa þar svona hengi í stað hurðar og stækka opið... held að það komi vel út þó það hljómi nú ekkert alltof vel. Já, svo er ég með milljón og tvær hugmyndir hvernig ég ætla mér að breyta íbúðinni... vantar aðeins fjármagn í þær hugmyndir en hver auka króna skal fara í lagfæringar. Jebb, jebb, jebb, gamanið er rétt að byrja... *glott*
Það hlakkar svo í mér... *enn stærra glott... bros jafnvel*
posted by Unknown
01:16
|