|
|
föstudagur, febrúar 27, 2004
Göngugrind?!
Já, nú svona þegar aldurinn færist yfir mann verður maður að gera tilheyrandi varúðarráðstafanir. Ég er núna búin að panta sérsmíðaða göngugrind fyrir svona gamalt fólk einsog mig. Heimtaði ég að hún yrði 5 gíra með einum rallygír. Þetta verður hotride 2004! Mér var sagt að þessi últra göngugrind myndi því miður ekki berast mér fyrir afmælisdaginn minn en ég ætti ekki að örvænta þar sem hrörnunin gerist ekki einn, tveir og þrír og yrði göngugrindin tilbúin fyrir þann tíma. Hvernig vita þeir hvenær hún byrjar hjá mér? Við hrörnum ekki öll jafn hægt! Jæja, þetta eru víst sérfræðingar á þessu sviði og ætti ég því að treysta þeim fyrir þessu.
posted by Unknown
19:21
|