|
|
miðvikudagur, júní 30, 2004
Bridge
Úfff, við erum ekki að gera góða hluti í Malmö. Já, þar er einmitt haldið EM í bridge og er landsliðunum okkar ekkert að ganga alltof vel. Karlarnir eru í þó í 15. sæti af 33 á meðan konurnar rétt hanga í 20. sæti af 22. En karlarnir hafa þó verið orðaðir við verðlaun á borð við "verstu vörn mótsins", "versta úrspil mótsins" og "verstu spilamennsku mótsins". Er ekki sagt að verðlaun séu verðlaun þó skammarverðlaun séu? Ég man eftir því þegar ég var yngri og var eitthvað óþekk (sem var sárasjaldan!) rétt fyrir jól, þá var mér gefin ("jólasveinninn") kartafla í skóinn. Ekki var ég nú óhress með það og var bara frekar ánægð. Hljóp víst fagnandi til mömmu og bað hana að sjóða hana strax, því "jóli" hafði verið svo góður að gefa mér mat :) Mamma var eitthvað að reyna að segja mér að þetta væru nú skammarverðlaun en ég var ekki að skilja hvernig kartafla gat verið eitthvað slæmt. Þegar mamma var búin að reyna í dágóðann tíma stóð hún upp og sauð bulluna fyrir mig og át ég hana ásamt smjöri með bestu list.
Þá sjáum við að ef einhver verðlaun verða hreppt þá er hægt að gera það besta úr þeim... eða mun betri hugmynd er endurnýja þessi blessuðu landslið og fá unga frjóa huga!!!
Já, hér segi ég að við eigum að snúa við blaðinu og átta okkur á því að þetta er ekki að gera neina lukku. Vissulega eru þetta gamalreyndir jaxlar sem hafa margt til bridgesins lagt hér en það verður líka að þjálfa upp nýtt fólk og fá einhverja endurnýjun inní þetta. Það er ekki alveg að gerast nú í dag en ég vona allavega að þessi óvelgengni þeirra í EM sýni þeim að það er eitthvað ekki rétt. Amk. opni aðeins augun á þeim að það þarf að bæta þetta. Það er lítill sem enginn metnaður í fólki hérlendis því það veit að það kemst ekkert áfram í þessu því landsliðið er fullskipað til dauðadags meðlima þess. En hvað þá? Á þá keppnisbridge bara að lognast útaf? Keppnisferðir erlendis? Bermúdaskálin? Við höfum nú unnið hana amk. einu sinni, árið 1990. Um það leiti var bridgelíf líka öflugt og var alltaf stöðug endurnýjun. Fólk átti möguleika á að komast í landsliðið og allt þar fram eftir götunum. En nú 14 árum seinna eru 3 af þeim 6 sem voru í landsliðinu þegar þeir unnu heimsmeistaratitilinn ennþá í því. Er þetta hægt?
Úff, ég verð stundum svo reið þegar maður horfir á unga mjög efnilega eða jafnvel alveg afburðagóða spilara vera hundsaða vegna þess að þessir gömlu þreyttu jaxlar unnu einu sinni titil! (ath. það var bara karla... nei, fyrirgefið opna landsliðið sem vann bermúdaskálina... konum er hvorki leyft að fara í opna landsliðið né hafa þær aldrei unnið bermúdaskálina)
Já svo maður skilji nú ekki eftir gremju sína gagnvart kvennsunum ekki eftir þá verð ég nú að segja að árangur þeirra er ekkert til að hrópa húrra yfir! Af hverju skildi það nú vera? Við skulum líta á málið... Í liðinu eru 6 konur valdar úr hópi þeirra bestu. Með fullri virðingu við konurnar verð ég að segja að það eru til nokkrar konur sem betur ættu heima í liðinu heldur en hluti þeirra sem þar eru. Þá er ég ekki að tala um sjálfa mig!!!! Ég veit það að ég er ekki í neinni þjálfun til að vera þarna og er ekkert svo viss um að ég hafi þann hæfileika sem til þarf. En burt séð frá því að horft sé framhjá mjög góðum bidgekonum, þá er þessi "ofur góði" þjálfari sem þær hafa ekkert að gera nein kraftaverk. Ég var nú bara á landsliðsæfingu einu sinni (eða tvisvar) og þá var talað við okkur einsog við værum hálfvitar og vissum ekkert hvað bridge var né hvað spil voru almennt. Hét ég því þá að ekki færi ég aftur í fyrsta lagi fyrr en það kæmi þjálfari sem bæri virðingu fyrir því að við (amk. ég) værum hugsandi manneskjur og hefðum heila sem við (amk. ég) vildum gjarnan nota! Ég veit til þess að amk. ein kvennanna sem stundaði þessar æfingar var svo hrifin af "þjálfaranum" að hún lofaði hann hásterkt og kom hinum konunum í trú um það að hann væri alveg æðislegur kennari og sjá þær nú ekki sólina fyrir honum. Kannski er hann bara svona óviðjafnanlega sætur... bíðið aðeins á meðan ég fer að gubba *ÆL*... persónlega sé ég ekkert við hann!
Kannski hefur hann breyst og er nú mikið betri þjálfari og reyni aðeins meira á þær. En hver er þá ástæða þessa lélega árangurs?
Æ, úfff, ég nenni ekki að vera gera mér einhverjar grillur útaf þessu en ég þurfti bara að fá smá útrás.
P.s. þetta eru bara mínar skoðanir séð útfrá mínu sjónarhorni en þær þurfa ekki endilega að endurspegla sannleikann.
posted by Unknown
00:09
|