|
|
fimmtudagur, október 07, 2004
Núna er flutningurinn afstaðinn
Það er búið að vera alveg mikið meira en nóg að gera hjá mér undanfarna daga. Ekki bara það að skólinn er með overload af heimavinnu og skólamæting er frá 8-16 alla daga, þá hafði maður það nú líka af að flytja. Já, nú er ég flutt í vesturbæinn.
Það má segja að þetta sé í fyrsta skiptið sem ég flyt virkilega að heiman. Ég er flutt að heiman, úff. Núna finnst mér ég virkilega vera orðin fullorðin (ekki það að mér fannst það ekki áður en samt... skiljiði?!). Ekki nóg með það að vera flutt heldur er ég komin með heimasíma líka. Úff, talandi um að vera fá smá raunveruleikasjokk hérna! Þetta er ótvíræð merking þess að maður sé orðinn gamall!
Allavega er allt komið í lag hér og við Svavar þá loksins orðin ein... hmmm, það er alveg vitað hvað það þýðir... heheheheeee...
posted by Unknown
13:09
|